Beint í efni
En

Vörumerki MS

Ferskur rjómakenndur Mozzarella er framleiddur í Skagafirðinum úr hreinni íslenskri kúamjólk. Framleiðsluhefðin á rætur að rekja til Ítalíu og með góðri hjálp frá ítölskum ostameisturum og nýjustu tækni getum við boðið upp á íslenskan mozzarella sem ostaunnendur og matgæðingar landsins ættu ekki að láta framhjá sér fara.

Eins og aðrar mjólkurvörur eru ab-vörurnar næringarríkar og innihalda hina heilnæmu a- og b-gerla. Í einu grammi af ab-mjólk eru að minnsta kosti 500 milljón a-gerlar og 500 milljón b-gerlar. Almenningur gerir sér æ betur grein fyrir mikilvægi hollrar og næringarríkrar fæðu í uppbyggingu líkamans. Meðal æskilegra fæðutegunda hvers dags eru ab vörur. Auk þess sem þær stuðla að hámarksnýtingu kalks í líkamanum treysta a - og b – gerlarnir mótstöðuafl líkamans gegn ýmsum tilfallandi sýkingum og sjúkdómum.

Rjómaostur til matargerðar er þéttur í sér, bragðmildur og ljúfur, bráðnar sérlega vel og hentar í margs konar rétti, til dæmis lasagna, pastarétti, bökur, pizzur, gratínrétti, pottrétti og margt fleira.

Saga Kókómjólkur spannar 50 ár en drykkurinn kom fyrst á markað árið 1973. Árið 1975 voru umbúðirnar skreyttar með mynd af ketti hlusta á tónlist og síðan þá hefur kötturinn verið lukkudýr Kókómjólkurinnar. Kötturinn Klói var nafngreindur 1990 þegar umbúðirnar fengu andlitslyftingu. Kókómjólk hefur fyrir löngu unnið hug og hjörtu Íslendinga enda passar hún vel með hverju sem er, súkkulaðisnúð og einni með öllu, ein sér eða með hverju sem er. Kókómjólkurframleiðsla hjá MS hófst fyrir 50 árum og hefur Kókómjólkin verið ein vinsælasta vara fyrirtækisins alla tíð síðan.