Beint í efni
En

Ert þú A týpa eða B týpa?

Nýjar umbúðir fyrir ab-mjólk eru á leið í verslanir og samhliða umbúðabreytingum leikum við okkur með svokallaðar A- og B-týpur þar sem ung kona er að reyna að finna jafnvægið í lífinu og tengjum á skemmtilegan hátt við ab-mjólkina okkar. Anna Birna er ung kona sem vill stundum vakna snemma og hreyfa sig eða kúra lengur og byrja daginn á rólegu nótunum. Hún er ekki A-týpa og eiginlega ekki B-týpa, hún er nefnilega AB-týpa og með ab-mjólk frá MS finnur hún sitt jafnvægi.

Sjá nánar

Gott í matinn í sumarskapi

Við tökum fagnandi á móti íslenska sumrinu með ómótstæðilegum ostaréttum, góðum grillmat, sumarlegum eftirréttum og alls kyns góðgæti. Fáðu innblástur fyrir sumarið og njóttu vel með fólkinu þínu.

Sjá nánar

Fernuflug

Mjólkursamsalan hefur frá árinu 1994 beitt sér fyrir eflingu móðurmálsins með fjölbreyttum leiðum og hafa stærstu og sýnilegustu verkefni okkar verið íslenskuátökin á mjólkurfernum MS. Mjólkurfernurnar hafa þannig verið nýttar sem vettvangur málræktar, tjáningar og sköpunar og því var ákveðið að endurvekja textasamkeppni grunnskólanema, Fernuflug, á haustmánuðum 2023.

Sjá nánar

Vinsælar vörur

Þitt er valið

Öll viljum við borða hollan og góðan mat. MS býður upp á breitt úrval af næringarríkum mjólkurvörum, allt frá smjöri og ostum yfir í skyrdrykki og jógúrt. Í dag er svo komið að neytendur hafa fjölbreytt val í öllum helstu vöruflokkum MS og höfum við unnið markvisst að því síðustu ár að minnka hlutfall viðbætts sykurs í afurðum okkar. Rúmlega 92% af allri mjólk sem kemur til MS fer í hreinar afurðir eða vörur án viðbætts sykurs.

Við erum MS

Mjólkursamsalan er fjölbreyttur vinnustaður og óhætt að segja að ein helsta auðlind MS sé mannauðurinn. Hjá okkur starfa um 450 starfsmenn um land allt sem mynda marga ólíka en samheldna hópa sem eiga það sameiginlegt að búa yfir mikilli reynslu, færni og þekkingu í sínum störfum.
Meginmarkmið okkar er ánægt starfsfólk sem hefur skýra ábyrgð og góða sérþekkingu á sínu sviði sem saman vinnur sem ein liðsheild að markmiðum fyrirtækisins.

Í góðri sátt við náttúru og samfélag 

Mjólkursamsalan einsetur sér í allri starfsemi sinni, allt frá söfnun mjólkur frá framleiðendum til framleiðslu og dreifingar fullunninnar vöru til viðskiptavina, að starfa í sátt við umhverfi sitt og náttúru landsins hverju sinni. Við leitumst við að endurspegla umhverfisvæn sjónarmið í öllum skrefum virðiskeðjunnar og leggjum ríka áherslu á bestu umgengni okkar til verndar umhverfinu og náttúru landsins.

Til að ná sem bestum árangri í umgengni við umhverfi og lífríki, leggur MS megináherslu á eftirtalda þætti sem tengjast umhverfisvernd með beinum hætti: loftlagsmál, vatnsverndar- og frárennslismál og umbúða-, aðfanga- og úrgangsmál.